ÍKB Raf — löggiltur rafvirkjameistari

Uppsetning hleðslustöðva fyrir rafbíla

Ég set upp hleðslustöðvar heima, við sumarhús og hjá fyrirtækjum — með réttum vörnum, álagsstýringu og frágangi sem uppfyllir reglugerðir.

Hringdu: 823-3020

Hvað felst í uppsetningu hleðslustöðvar?

Uppsetning hleðslustöðvar er meira en að hengja tæki á vegg. Ég met töfluna og heimtaugina, legg réttan streng, set upp viðeigandi varnarbúnað (lekaliða og var) og geng frá stöðinni þannig að hún hlaði örugglega og eins hratt og aðstæður leyfa.

Flest heimili velja 7,4–11 kW stöð. Ef taflan annar ekki álaginu finn ég lausn — t.d. álagsstýringu sem deilir afli milli heimilis og bíls.

Hleðslustöð við sumarhús

Sífellt fleiri vilja geta hlaðið rafbílinn í bústaðnum. Ég hef sett upp hleðslustöðvar í sumarhúsum víða um Suðurland og þekki vel þær áskoranir sem fylgja — takmarkað afl, lengri strenglagnir og íslenskt veðurfar.

Vantar þig hleðslustöð?Ókeypis mat á verkinu og skýrt tilboð án skuldbindinga.
Hringdu: 823-3020
Hringja í ÍKB Raf — 823 3020