Þjónusta fyrir sumarhúsaeigendur
Sumarhús gera aðrar kröfur en heimili í bænum: rakabreytingar, frostþol, lengri strenglagnir og rafmagn sem þarf að vera öruggt þó enginn sé á staðnum vikum saman. Ég sé um allt frá heildarlögnum í nýbyggingar til minni viðbóta og bilanaleitar í eldri bústöðum.
- Heildarlagnir í ný sumarhús
- Pallalýsing, útitenglar og útilýsing
- Heitir pottar og hleðslustöðvar
- Bilanaleit og endurnýjun eldri lagna
- Snjallstýringar — kveiktu á hita úr símanum
Svæðin sem ég þjónusta
Ég er með mörg verkefni í Grímsnesi og nágrenni og tek að mér verk um allt Suðurland og á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir stærri verk annars staðar á landinu er best að hafa samband tímanlega.
Verkefni í bústaðnum?Ókeypis mat á verkinu og skýrt tilboð án skuldbindinga.
Hringdu: 823-3020